Specialisterne stuðla að því að einstaklingar á einhverfurófi eigi jöfn tækifæri og aðrir á atvinnumarkaði. Við drögum fram styrkleika einstaklinga á einhverfurófi og finn rétt atvinnutækifæri fyrir hvern og einn.
Vegna takmarkandi þátta einhverfunnar eiga margir einstaklingar í erfiðleikum með að fá atvinnu við hæfi. Fyrstu kynni og framkoma í atvinnuviðtölum er oft það sem fólk er dæmt eftir, horft er til veikleika einstaklinga en ekki styrkleika sem þó eru oftast til staðar! Í hverri viku eru hjá okkur einstaklingar sem þrá að fá tækifæri til þess að komast í vinnu.
Markmið og hlutverk
- Markmið okkar er að taka á móti a.m.k. 15-20 einstaklingum á ári í starfsþjálfun og færnimat og koma í það minnsta helmingi þeirra í atvinnu innan árs.
- Þá er mikilvægt að bæta líf þeirra einstakling sem koma í þjónustu hvað varðar almenna lýðheislu, líkamlega og andlega og rjúfa félagslega einangrun.
- Til þess að koma einsatklingum á einhverfurófi út á vinnumarkaðinn þá þarf einnig að aðstoða fyrirtæki við að ráða einstaklinga með sértækar þarfir. Fyrirtækin þurfa ráðgjöf og stuðning og hvatningu til þess að taka samfélagslega ábyrgð og verða sjálfbær hvað þetta varðar.