Fræðsla

Hvað er einhverfa og einhverfuróf?

Einhverfa getur birtst í mismunandi myndum, verið mis alvarleg og því er talað um einhverfuróf. Einstaklingur á einhverfurófi þarf að takast á við áskorarnir á eftirfarandi sviðum.

  • Færni til að taka þátt í félagslegum samskiptum.
  • Færni í máli og tjáskiptum.
  • Áráttukennd hegðun.

Tíðni einstaklinga sem greinast á einhverfurófi hefur vaxið á undanförnum árum með aukinni þekkingu. Talið er að tíðni einstaklinga á einhverfurófi sé rúmlega 1% sem þýðir tæplega 4.000 einstaklingar á Íslandi. Þessi tíðni er sú sama allstaðar í heiminum og er jöfn í öllum hópum samfélagsins.