Ferillinn

Mats- og þjálfunarferli Specialisterne er 12-20 vikur. Á þessu tímabili fá starfsmenn markvissa þjálfun við hæfi, sem felur í sér styrkleikamat og starfsþjálfun hjá fyrirtækjum. Einnig er lögð áhersla á að auka félagsfærni starfsmanna. Hjá Specialisterne er lögð áhersla á góðan starfsanda og þægilegt vinnuumhverfi, þar sem hver og einn fær að njóta sín.